Æfingasvæði Skotreynar er opið í júlí og ágúst (til 26.) á mánudögum, þriðjudögum miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 18 til 22.  Ath. breytingar á opnunartíma eru auglýstar með fyrirvara ásamt því sem skerðing getur orðið á opnunartíma vegna móta á miðvikudögum.
 

Landssamtök um skynsamlega skotveiði

Landssamtök um skynsamlega skotveiði

Forsíða arrow Sækja um aðild að Skotvís

Gerast félagi í Skotvís

Árgjaldið í Skotvís er 4.500 krónur á ári. Nauðsynlegt er að fylla út í reiti merkta með *

Aðildarumsókn
Kennitala *
Fornafn *
Eftirnafn *
Heimilisfang *
Póstnúmer *
Staður *
Símanúmer *
Netfang *
Greiðslumáti
Kortanúmer
Gildistími
Öryggisnúmer korts (CCV yfirleitt 3 tölur aftan á korti)
Árleg færsla á kreditkort
Vera meðlimur í Skotreyn
Póstlisti
Skilaboð:
Kt. tilvísunarmanns Kennitala þess aðila sem bauð þér í félagið (ef við á). Þetta er sá félagsmaður sem fær nafnið sitt í lukkupott fyrir að skrá þig í félagið.
Öryggismynd
Einungis á að slá inn svarta letrið, ekki það ljósgráa.


Árgjald Skotvís er kr. 4.500,- og hagsýnir félagsmenn geta fengið það fljótt endurgreitt á ýmsan hátt. Hér eru nokkur dæmi (athugið að verð getur verið mismunandi eftir gerð bíls):

Nesdekk: Umfelgun á óbreyttum jeppa, Fullt verð 11.100,- Skotvísverð: 8.880,- Sparnaður 2.220,-
Klöpp: Smurning á jeppa, Fullt verð 13.000,- Skotvísverð: 11.440,- Sparnaður 1.560,-
Ellingsen: Haglaskot, Fullt verð 12.000,- Skotvísverð: 10.800,- Sparnaður 1.200,-
Olís: Bensín í sjálfsafgreiðslu, 2200 lítrar (ársbyrgðir m.v. 20 þúsund km. og 11 ltr/100km) Sparnaður 4.400,-

Heildarsparnaður í þessu dæmi er því kr. 9.380- eða rúmlega tvöfalt árgjald Skotvís.

Þá er rétt að benda á að félagsmenn Skotvís fá sent glæsilegt tímarit einu sinni á ári um útivist og veiðar, en það kostar í lausasölu kr. 1.190,-
Í tilefni 30 ára afmæli Skotvís var gerð fræðslumynd um gildruveiðar á mink, félagsmönnum gefst kostur á að fá þennan disk sendan án endurgjalds en verðmæti hans er kr. 3.600,- þá er félagið að vinna að gerð fræðslumyndar um meðferð og meðhöndlun á villibráð. Þessi mynd verður tilbúin í október í ár og munu félagsmenn geta fengið myndina á DVD diski senda án endurgjalds. Þessi mynd kostar kr. 3.900,-
Þá er rétt að geta þess að félagsmenn í Skotvís eiga kost á afslætti á ýmsum öðrum vörum og þjónustu en listi þess efnis er á heimasíðu félagsins og árstíðabundnir afslættir eru auglýstir sérstaklega.
Félagsmönnum gefst kostur á að fá netfang með endingunni @skotvis.is, t.d. jon@skotvis.is, þeir sem hafa áhuga á slíku er bent á að senda beiðni um það á webmaster@skotvis.is, auk þess heldur félagið úti veglegri vefsíðu þar sem er að finna einn mesta fróðleik á íslandi um vopn og veiðar og þar er hægt að skiptast á skoðunum og auglýsa frítt notaða vöru ef vill.
Þá heldur félagið fræðslufundi um ýmis málefni er tengjast veiðum, þá gefst þeim félagsmönnum sem hyggjast halda til hreindýraveiða, kostur á að taka skotpróf og er það án endurgjalds.

Á þessu má sjá að það er fjárhagslega afar hagkvæmt að vera félagsmaður í Skotveiðifélagi Íslands. Mestu skiptir þó að félagið gætir hagsmuna íslenskra skotveiðimanna og ef ekki nyti því við má fullyrða að allar aðstæður til veiða væru mun erfiðari hér á landi en nú er. Ýmislegt er á döfinni er hjá félaginu sem of langt mál yrði að rekja hér en þó er rétt að segja frá því að verið er að vinna að því í samráði við bændur, sveitafélög og landeigendur að hafa milligöngu um veiðilendur fyrir félagsmenn Skotvís.

Nauðsynlegt er að fjölga félagsmönnum enn frekar. Með því gerum við félagið enn öflugra og getum því veitt enn betri og meiri þjónustu. Þess vegna hvetjum við þig að skrá þig í Skotvís nú þegar. Með því ert þú að styrkja félagið og efla – það er þinn hagur.

Með veiðikveðju

Fyrir hönd stjórnar Skotvís
Sigmar B. Hauksson
 
Joomla Templates by Joomlashack