Síðasta vika sumar opnunar er 5 til 11 september - þá viku verður opið mánudag, þriðjudag og fimmtudag frá 18 til 21. Í vetur verður opið á laugardögum en þær opnanir verða auglýstar sérstaklega hverju sinni.
 

Landssamtök um skynsamlega skotveiði

Landssamtök um skynsamlega skotveiði

Forsíða arrow Spjallsvæði
Skotveiðispjall
Velkomin(n), Gestur
Vinsamlegast Innskrá eða Nýskráning.    Týnt lykilorð?
Samstarfsvilji Umhverfisstofnunar. (1 skoða) (1) Gestur
Annað
Fara neðst Svar Favoured: 0
TITILL: Samstarfsvilji Umhverfisstofnunar.
#106
hbr (Notandi)
Fresh Boarder
Færslur: 2
graphgraph
Notandi ótengdur Smelltu hér til að sjá upplýsingar um notanda
Samstarfsvilji Umhverfisstofnunar. 5 mánuði síðan Karma: 1  
Margt athyglivert er að finna í veiðidagbók ársins frá Umhverfisstofnun. Leiðara skrifar Bjarni Pálsson deildarstjóri hjá stofnuninni. Þar segir m.a.: ,, Umhverfisstofnun er að hefja vinnu við stefnumótun í sjálfbærri veiðistjórnun og mun kalla til þess hina ýmsu hagsmunahópa til samstarfs til þess að fá sem flest sjónarmið fram”. Með tilliti til þess hve mjög þessi stofnun hefur þanist út á þeim fáu árum sem hún hefur verið til, þá spyr maður fyrst við hvað er átt með sjálfbærri veiðistjórnun. Er þar átt við hinn ört vaxandi stofn fræðinga, stjórnenda og umhverfisstjórnunarfræðinga sem stöðugt búa sér til verkefni byggð á hinni fábreyttu veiðifánu landsins, eða eru það veiðistofnar sjálfir sem embættismennirnir ætla að stjórna til sjálfbærni ? Þá er rétt að halda því til haga að stofnar veiðidýra og fugla á Íslandi hafa verið ágætlega sjáfbærir (*1) fyrir daga Umhverfisstofnunar.

Á hinn bóginn hljómar það vel að til standi að efna til samstarfs við þá sem hagsmuni eiga undir fyrirhugaðri veiðistjórnun. Þar hlýtur einkum að vera átt við skotveiðimenn og veit ég reyndar ekki um svo marga aðra hópa sem þarna hafa hagsmuna að gæta. En samstarfsyfirlýsingu ber að fagna, hún má teljast nýmnæli því veiðistjórnun undanfarinna ára hefur einkennst af yfirgangi gagnvart skotveiðimönnum. Í samræmi við ákvæði veiðilaganna, nr.64 1994, starfaði sk.villidýranefnd nokkur fyrstu árin og var ráherra til rágjafar um allt er snerti veiðar og veiðidýr. SKOTVÍS átti fulltrúa í nefndinni sem var mjög gagnlegur vettvangur skoðanaskipta milli stjórnsýslunnar og þeirra sem hagsmuna áttu að gæta varðandi veiðinytjar. Illu heilli var nefndin slegin af með tilkomu Umhverfisstofnunar. Í núgildandi útgáfu veiðilaganna er þó eftirfarandi ákvæði:
Um stefnumótandi mál um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum skal haft samráð við Bændasamtök Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, hreindýraráð að því er varðar hreindýr, Skotveiðifélag Íslands sem og áhuga- og hagsmunasamtök um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Ekki verður betur séð en að brotið hafi verið gróflega gegn þessu ákvæði laganna varðandi Vatnajökulsþjóðgarð, samanber formleg mótmæli stjórnar SKOTVÍS þar um.
Fólkið í landinu á lögvarinn rétt til skotveiða í almenningum –þjóðlendum- samanber 8. grein veiðilaganna. Líklega þarf að grafa þessa staðreynd í borðplöturnar í Umhverfisráðuneytinu.

Saga þess ráðuneytisins hefur verið skondin þótt ekki sé hún löng. Ráherrarnir koma og fara, þeir máta stólinn einn af öðrum, derra sig lítilsháttar og hverfa svo á braut. En stöðugur virðist standa einhver valdahópur sem orðinn er til umhverfis ráðuneytið. Hann fer offari í friðlýsingum og hundsar rétt almennings til landsins. Þetta lið virðist staðráðið í að taka völdin í þjóðlendunum og leggja þær undir erlendan túrisma, en ferðaþjónustan er að verða hin heilaga kýr landans í stíl við laxeldis og loðdýra brjálæði fyrri ára.

(*1) Orðið sjálfbærni er í tísku um þessar mundir. Ég vil skilja það sem lýsingu á jafnvægisástand, t.d. hæfni dýrastofns til að þola afrán.

Haukur Brynjólfsson
 
Láta stjórnanda vita   Skráð Skráð  
  Kerfisstjóri leyfir ekki almenningi að skrifa.
Fara efst Svar
Keyrt með FireBoardfá nýjustu færslur beint á skjáborðið (RSS)
 
Joomla Templates by Joomlashack