Síðasta vika sumar opnunar er 5 til 11 september - þá viku verður opið mánudag, þriðjudag og fimmtudag frá 18 til 21. Í vetur verður opið á laugardögum en þær opnanir verða auglýstar sérstaklega hverju sinni.
 

Landssamtök um skynsamlega skotveiði

Landssamtök um skynsamlega skotveiði

Könnun

Forsíða arrow Fréttir arrow Kynningarbæklingur um Skotreyn - leitum að myndefni
Kynningarbæklingur um Skotreyn - leitum að myndefni PDF Prenta Rafpóstur
Höfundur: Kristján Sturlaugsson   
mánudagur, 28 júní 2010

Kæru veiðimenn 

Skotreyn er að undirbúa útgáfu kynningarbæklings fyrir félagið, sem er sérstaklega hugsaður til kynningar fyrir þá sem eru að ljúka veiðikortanámskeiðum, en útgáfudagurinn er hugsaður 20. ágúst n.k.

Ákveðið hefur verið að leita í smiðju félagsmanna eftir myndefni, en þar sem við erum Skotveiðifélag, þá er meiningin að hafa blöndu af eftirfarandi þema í bæklingnum sem á að endurspegla starfsemi okkar, þ.e.

Dýralíf í íslenskri náttúru (íslenskir veiðistofnar)
Fræðsla
Skotveiðimenn á veiðum
Æfingaaðstaðan á Álfsnesi
Villibráðin og meðhöndlun/neysla hennar

Það væri gaman ef þið gætuð sent inn skemmtilegar myndir úr safni ykkar á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það fyrir föstudaginn 16. júlí, en eigendur mynda sem yrðu valdar í bæklinginn verða verðlaunaðir með 5 leirdúfuhringjum á skotæfingasvæði Skotreyn á Álfsnesi fyrir hverja mynd sem verður endanlega valin í bæklinginn.

Kveðja – Stjórn Skotreynar

 
< Fyrri   Næsti >
 
Joomla Templates by Joomlashack