|
Ályktun Skotveiðimanna vegna Vatnajökulsþjóðgarðs |
|
|
|
|
Höfundur: Kristján Sturlaugsson
|
|
miðvikudagur, 23 júní 2010 |
|
Skotveiðimenn á Íslandi mótmæla því harðlega að takmarka eigi þann almannarétt okkar til að stunda veiðar í náttúru Íslands sem fram koma í tillögum stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs í stjórnunar og vendaráætlun fyrir þjóðgarðinn. Við krefjumst þess að ekki verði hreyft við hefðbundnum skotveiðum innan Vatnajökulsþjóðgarðs og staðið verði við loforð sem gefin voru við stofnun hans. Veiðar hafa verið stundaðar á svæði þjóðgarðsins um aldir og við krefjumst þess að allar tillögur sem á einn eða annan hátt skerða möguleika almennings til að stunda skotveiðar innan þjóðgarðsins verði felldar út úr tillögunni.
Skotveiðimenn spyrja “Fyrir hvað stendur orðið þjóð í þjóðgarður?”
Ályktun samþykkt á opnum fundi skotveiðimanna í Álfsnesi 22. júní 2010
|