|
Reykjavík 15. mars 2010
Ályktun stjórnar Skotveiðifélags Íslands vegna tillögu að verndaráætlun fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.
Skotveiðifélag Íslands undrast þær tillögur og þau vinnubrögð sem liggja fyrir í tillögu að verndaráætlun fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar koma fram tillögur um bann við veiðum á hreindýrum, gæsum og rjúpum á ákveðnum svæðum innan þjóðgarðsins. Skýrsluhöfundar hafa ekkert samband haft við viðeigandi hagsmunaaðila, í þessu tilfelli Skotveiðifélag Íslands, þrátt fyrir að lagt sé til að gengið sé á rétt skotveiðimanna með tillögunni. Það bendir til þess að viðunandi hagsmunaaðilagreining hafi ekki verið unnin af skýrsluhöfundum.
Tillagan var kynnt á fundi þann 11. mars sl. á Hótel Héraði og var Skotveiðifélagi Íslands aldrei tilkynnt um þennan fund. Það er athyglisvert þar sem fram kemur á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs að svæðisráð, sem ber ábyrgð á tillögunni, verði á staðnum til taka á móti ábendingum og athugasemdum varðandi drögin að verndaráætluninni. Miðað við þetta má draga þá ályktun að skýrsluhöfundar hafi ekki kært sig um athugasemdir frá skotveiðimönnum og þeirra hagsmunasamtökum.
Þegar
drögin eru lesin kemur í ljós að lítill sem enginn rökstuðningur fylgir
þessum tillögum við veiðibanni og fordómar virðast ríkja gagnvart
sportveiðum. Af orðalagi skýrslunnar má lesa að slíkar veiðar séu á
lægri skör en hefðbundnar nytjar (atvinnuveiðar) og veiðar heimamanna.
Slíkt hlýtur að teljast til vankunnáttu á málaflokknum sem hefði verið
einfalt mál að útskýra fyrir viðkomandi ef málið hefði verið borið undir
rétta hagsmunaðila. Rökin sem dregin eru fram halda ekki og sem dæmi um
það er tillaga um bann við rjúpnaveiðum. Í kafla 11.3 a) í tillögunni
segir:
„Rjúpnaveiði
á Snæfellsöræfum eru fyrst og fremst sportveiði og telst vart til
hefðbundinna nytja. Umferð um svæðið að hausti getur valdið spjöllum á
vegum og krefst aukins eftirlits og viðveru landvarða. Lagt er til að
rjúpnaveiði verði óheimil innan marka þjóðgarðsins á Snæfellsöræfum”
Þessi rök
halda engan veginn enda kemur það á daginn að í stað þess að landverðir
þurfi að hafa eftirlit með vegum þarf einhver annar í staðinn að
fylgjast með að rjúpnaveiðar séu ekki stundaðar á svæðinu. Ef
raunveruleg ástæða er sú að starfsmenn þjóðgarðsins og aðrir óttast um
afdrif vega þá er nærtækara að leggja til bann við umferð á þeim í stað
þess að ætla rjúpnaskyttum og sportveiðimönnum skemmdir á þeim. Eins er
þessi kafli í hrópandi mótsögn við það sem á undan hefur komið í
skýrslunni, en kafli 9.3 fjallar um hvernig hvetja megi til aukinnar
útvistar og hreyfingar yfir vetrarmánuðina á svæðinu, en það eru einmitt
rjúpnaveiðimenn sem stunda útivist af kappi um vetrarmánuði. Jafnframt
skal bent á að slíkt bann getur komið niður á rekstraraðilum
gistiheimila á svæðinu er veita utanaðkomandi veiðimönnum beina, á
annars frekar annalitlum tíma ársins.
Í
tillögunni segir að rjúpnaveiðar teljist vart til hefðbundinna nytja.
Nýting íslenska rjúpnastofnsins er aftur á móti mjög gott dæmi um stofn
sem hefur verið nýttur um aldir og veiðar úr honum geta því vart talist
annað en hefðbundnar nytjar. Sennilega eru veiðar á rjúpum, gæsum og
hreindýrum einhver sterkasta hefð fyrir hverskonar nýtingu sem finna má
um þetta svæði. Það er ekki fyrr en á allra síðustu árum sem hefð hefur
skapast fyrir útivist á svæðinu sem ekki tengist veiðum eða
smalamennsku. Lengst af var þetta svæði úr alfaraleið fyrir almenning og
þeir einir sem stunduðu smalamennsku og veiðar áttu þangað erindi.
Það er
fleira sem er mótsagnakennt í tillögunni. Í kafla 5.2 er fjallað um
svæði sem þarfnast sértækra aðgerða. Þar segir:
„Á
austursvæði er ekki hægt að benda á nein svæði sem nú þarfnast sérstakra
aðgerða til að varðveita eða viðhalda náttúru“.
Samt er
lagt til í kafla 11.3 að veiðar verði bannaðar á svæðum sem hefð er
fyrir að veiðar séu stundaðar á. Eins og áður segir fjallar kafli 9.3 um
hvatningu til aukinnar útvistar og hreyfingar yfir vetrarmánuðina. Þar
er beinlínis hvatt til aukinnar útvistar á svæðinu og þar á meðal er
sérstaklega minnst á skotveiðimenn. Ekki er hægt að sjá að samkvæmt
þessari grein að það stafi óánægja með umferð veiðimanna á svæðinu. Í annarri grein
laga nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð segir:
„Markmiðið
með stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs er að vernda landslag, lífríki,
jarðmyndanir og menningarminjar svæðisins og gefa almenningi kost á að
kynnast og njóta náttúru þess og sögu.“
Það er
einmitt þessi almenningur sem með þessari tillögu er vegið að en mikill
fjöldi veiðimanna til dæmis af höfuðborgarsvæðinu hefur sótt þetta svæði
heim sér til ánægju og til að upplifa íslenska náttúru við veiðar á
sterkum veiðistofnum.
Fram kemur í
kafla 11.3 b) í tillögunni að veiðum á gæsum ætti að vera stýrt á
svæðinu. Veiðum á gæsum og öðrum villtum fuglum er
nú þegar stýrt samkvæmt lögum nr. 64/1994 og eru gæsaveiðar heimilar frá
og með 20. ágúst samkvæmt ákvörðun umhverfisráðherra. Þá er varp og
fellitími gæsa löngu afstaðinn og stendur afar sterkur heiðargæsastofn
vel undir þeim veiðum sem eru stundaðar á þessu svæði.
Loks er það
ótækt að það sem fram kom á undirbúningsstigum þjóðgarðsins skuli ekki
vera í heiðri haft, en það kom margoft fram á fundum nefndar um stofnun
þjóðgarðsins að veiðar skyldu ekki vera bannaðar eða takmarkaðar innan
þjóðgarðsins.
Varðandi
bann við hreindýraveiðum á svæðinu þá telur stjórn Skotveiðifélags
Íslands víst að eitthvað um þá tillögu muni berast frá Félagi
leiðsögumanna um hreindýraveiðar innan tíðar.
Stjórn
Skotveiðifélags Íslands leggur til að textinn í kafla 11.3 í tillögu að
verndaráætlun fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs verði felldur út í
heild sinni og í staðinn greint frá því að hefð sé fyrir veiðum á
svæðinu og þeim skuli haldið í sama fari og var áður en umrætt landsvæði
varð að þjóðgarði.
Stjórn
Skotveiðifélags Íslands áskilur sér rétt til að koma á framfæri, í
framhaldi af þessari ályktun, fleiri athugasemdum innan tíðar til þeirra
sem málið varðar.
Virðingarfyllst,stjórn
Skotveiðifélags Íslands
Ályktun
þessi er send til eftirtaldra aðila:
Umhverfisráðherra
Framkvæmdarstjóra
og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs
Svæðisstjórn
austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs
Félagi
leiðsögumanna með hreindýraveiðum
Skotveiðifélagi
Austurlands
Skotveiðifélagi
Reykjavíkur
SAMÚT
|