|
Aðalfundur Skotreynar var haldinn þriðjudaginn 28. febrúar 2010.
Formaður Skotreynar Fannar Bergsson opnaði fundinn og skipaði ritara félagsins til að stýrafundi (fundarstjóra) og til að rita fundargerð.
Fundarstjóri las upp dagskrá fundarsins:
1. Skýrsla formanns.
2. Skýrsla gjaldkera.
3. Umræður um lið 1 og 2.
4. Kostning stjórnar.
5. Önnur mál.
Formaður fór yfir félagsárið 2009. 150 þús. dúfur voru skotnar á völlum félagsins og byggt var skýli yfir völl 2, ásamt því sem tilraunir voru gerðar til að lýsa upp völl 3 að kvöldlagi. Einnig var rætt um ný lög Skotreynar sem tóku gildi á liðnu ári ásamt því að gerður var samstarfsamningur við Skotvís til þriggja ára.
Næst fór Jón Örn Gunnlaugsson Gjaldkeri yfir reikninga félagsins og sýndi nýgerðan efnahagsreikning félagsins.
Umræður urðu þónokkrar um skýrslu gjaldkera ásamt fyrirspurn um um skýrslu formanns.
Því næst lagði Formaður Skotreynar fram tillögu að nýrri stjórn þ.e. úr stjórn gengu Fannar Bergsson, Halldór Ingi Hákonarson og Guðmundur Oddgeir Indriðason. Kristjá Sturlaugsson og Jón Örn Gunnlaugsson voru kosnir kosnir í stjórn á síðast fundi en hvert kjörtímabil er tvö ár og því halda þeir áfram í stjórn. Tillag Fannar var sú að Friðrik Garðar Rúnarsson yrði Formaður, Þráinn Skúlason meðstjórnandi og Stefán Róbert Gisurarson meðstjórnandi. En varmenn yrðu Arne Sólmundsson og Stefán Svavarsson.
Tillaga var samþykkt einróma af fundarmönnum.
Því næst voru rædd ýmis mál undir liðnum önnur mál.
Fundi var slitið kl. 19.
|