|
Höfundur: Kristján Sturlaugsson
|
|
þriðjudagur, 09 mars 2010 |
|
Ágæti Skotreynarfélagi
Nú í upphafi starfsárs hefur stjórn Skotreynar einsett sér að efla og auka fjölbreytni félagsstarfsins. Liður í því er að mánaðarlega verður hverður haldið vopnaþing í félagsheimilinu okkar á Álfsnesi.
Vopnaþing má líta á sem hliðstæðu svo kallaða saumaklúbba sem sumir félagar kannast sjálfsagt við og stunda jafnvel slíkar samkomur reglulega.
Fyrsta vopnaþingið verður haldið miðvikudaginn 17. mars kl 20:00 og þá ætlum við að hittast og þrífa og yfirfara haglabyssurnar okkar. Þetta verður ekki með formlegu sniði heldur mætum við bara og lærum af öðrum og/eða miðlum af reynslu okkar.
Framvegis verður vopnaþing svo haldið fyrsta miðvikudag hvers mánaðar frá september og út mai.
Ýmsar hugmyndir eru þegar fram komnar innan stjórnar en hafi félagar hugmyndir að viðfangsefnum á vopnaþingum þá skulu þeir ekki hika við að koma þeim hugmyndum á framfæri við stjórn, annað hvort með tölvupósti eða á facebook-síðu félagsins.
Við vonumst til að sjá sem flesta og hvetjum nýja félaga sérstaklega til að mæta, gráar/gráir fyrir járnum!
Kær kveðja,
stjórn Skotreynar
|