Lög Skotveiðifélags Íslands,
með breytingum samþykktum á aukaaðalfundi félagsins þann 20.
janúar 2010.
I. kafli
Heiti félagsins, heimili og markmið
1. grein
Félagið heitir Skotveiðifélag Íslands (skammstafað SKOTVÍS),
heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. grein
Markmið félagsins er að standa vörð um hagsmuni og réttindi
skotveiðimanna á Íslandi.
3. grein
Tilgangur félagsins er að stuðla að sameiningu skotveiðimanna
og áhugamanna um skotveiðar og náttúruvernd og standa vörð um hagsmuni þeirra.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná m.a. með því að:
- Stuðla að
útgáfustarfsemi og almennri fræðslu um málefni, sem snerta skotveiðar,
náttúruvernd og almennan fróðleik um dýralíf landsins.
- Eiga samvinnu
við önnur félög og samtök, innlend og erlend, sem hafa málefni tengd
áhugamálum skotveiðimanna á stefnuskrám sínum.
- Stuðla að
rannsóknum og gagnasöfnun um stofna veiðidýra.
- Eiga samvinnu
við önnur félög og opinbera aðila um setningu laga og reglugerða um
almannarétt, náttúruvernd, friðun og veiðar dýra og meðferð skotvopna.
- Aðstoða við
stofnun félaga um skotveiðar og styðja við starfsemi þeirra.
- Greiða fyrir
aðgangi veiðimanna að veiðilöndum.
- Gangast fyrir
kynningu og fræðslu fyrir almenning um skotveiðar.
- Stuðla að
aukinni hagkvæmni innkaupa fyrir félaga.
- Stuðla að
sjálfbærri nýtingu dýrastofna.
II. kafli - Félagar
4. grein
Félagar geta orðið þeir einstaklingar er játast undir lög og
siðareglur Skotveiðifélags Íslands.
Fullgildir félagar teljast þeir félagar er hafa greitt
árgjöldin og eru skuldlausir við félagið. Félaga er skylt að tilkynna félaginu
nýtt eða breytt heimilisfang sitt. Gerist félagsmaður brotlegur við lög
félagsins eða siðareglur, getur stjórn félagsins veitt honum áminningu eða
vikið honum úr félaginu. Skal stjórnin tilkynna honum það skriflega og geta
ástæðna fyrir úrskurði sínum. Fallist viðkomandi ekki á málsmeðferð
stjórnarinnar, getur hann skotið máli sínu fyrir félagsfund, sem fellir
endanlegan úrskurð í málinu, og ræður einfaldur meirihluti úrslitum.
5. grein
Verði meðlimur SKOTVÍS 67 ára fyrir aðalfund félagsins og hafi
hann jafnframt verið félagi í SKOTVÍS í a.m.k. 5 ár skal hann skoðast ævifélagi
og borgar ekki félagsgjöld upp frá því. Ævifélagi hefur sömu réttindi og
skyldur og aðrir félagar í SKOTVÍS.
III. kafli Stjórn félagsins
6. grein
Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum, formanni, varaformanni,
ritara, gjaldkera, og þremur meðstjórnendum. Formaður og varaformaður skulu
kjörnir sérstaklega, en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Ekki
skal kjósa í stjórn félagsins aðra en þá sem hafa lýst því yfir að þeir séu
tilbúnir til að sinna starfinu eins vel og nauðsyn krefur.
7. grein
Formaður og varaformaður skulu kosnir til eins árs í senn, en
aðrir stjórnarmenn til tveggja ára .
8. grein
Stjórnarmenn skulu kosnir beinni kosningu úr röðum félaga, á
aðalfundi ár hvert.
9. grein
Stjórn félagsins ræður málefnum þess, milli aðalfunda.
Stjórnarfundur telst löglegur ef meirihluti stjórnar er mættur. Stjórnarfundir
taka ákvarðanir um daglega starfsemi og bera ábyrgð á fjárreiðum félagsins.
Stjórnin getur skuldbundið félagið, með meirihlutaákvörðun stjórnarfundar,
innan ramma fjárhagsáætlana og er undirskrift formanns (varaformanns í
forföllum formanns) ásamt gjaldkera nægileg staðfesting þess. Stjórn félagsins
kemur fram fyrir hönd félagsins í viðræðum við stjórnvöld og aðra aðila
innlenda sem erlenda og gætir hagsmuna skotveiðimanna. Komi upp mál sem rúmast
ekki innan samþykktar fjárhagsáætlunar getur stjórnin leitað samþykkis
félagsfundar. Gerðir stjórnar og samþykktir skulu bókaðar.
10. grein
Félagsfundur telst löglegur sé til hans boðað með áberandi
hætti í fjölmiðli og á vefsíðu félagsins með minnst 10 daga fyrirvara. Með
fundarboði skal vera dagskrá. Minnst 1/10 hluti atkvæðisbærra félagsmanna getur
krafist þess að félagsfundur verði haldinn.
IV. kafli -
Aðalfundur
11. grein
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfundur
telst löglegur sé löglega til hans boðað.
12. grein
Aðalfund skal halda fyrir 1. mars ár hvert. Til hans skal
boðað á áberandi hátt með auglýsingu í fjölmiðlum og á vefsíðu félagsins með
minnst tveggja vikna fyrirvara. Rétt til setu á aðalfundi með málsfrelsi,
tillögurétt og kjörgengi í stjórn
eiga gildir félagar. Félagsmenn í aðildarfélögum eiga rétt til setu á
fundinum og þau réttindi sem mælt er fyrir um í samstarfssamningi félaganna..
Einnig getur aðalfundur leyft áheyrnarfulltrúum að sitja fundinn og skal seta
áheyrnarfulltrúa borin upp eftir kosningu fundarstjóra og fundarritara.
13. grein
Þessi mál skulu tekin fyrir á aðalfundi félagsins:
- Skýrsla
stjórnar.
- Lagðir fram
skoðaðir reikningar félagsins og deilda.
- Lagabreytingar.
- Ákvörðun
félagsgjalda, næsta almanaksárs. (Á fyrsta aðalfundi eftir samþykkt
þessara breytinga skal eins ákveðið árgjald líðandi árs.)
- Kosning
formanns, varaformanns og stjórnar.
- Kosning
tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
- Önnur mál.
14. grein
Lögum félagins verður aðeins breytt á aðalfundi félagsins.
Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórninni fyrir 1. desember og
skulu auglýstar í fundarboði. Ekki má greiða atkvæði um aðrar tillögur um
lagabreytingar en þær sem auglýstar eru í fundarboði. Til þess að
lagabreytingar öðlist samþykki þarf tvo þriðju hluta greiddra atkvæða
fundarmanna.
15. grein
Atkvæði ¾ hluta félagsmanna á aðalfundi þarf til þess að
leggja félagið niður, enda hafi tillaga um það verið á dagskrá fundar sem
sérstakt málefni. Skulu allar eignir félagsins þá renna til Fuglaverndarfélags
Íslands.
16. grein
Aukaaðalafund skal halda ef meirihluti stjórnar telur
nauðsynlegt eða ef meirihluti fundarmanna samþykir á félagsfundi. Skal boðað
til slíks fundar með sama hætti og aðalfundar. Hefur fundurinn sama vald og aðalfundur enda sé fundarefni
tilgreint í fundarboði.
V. kafli - Aðildarfélög,
deildir og samstarf
17. grein
Félagi er heimilt að sækja um aðild að SKOTVÍS fyrir sig og
meðlimi sína hafi slík umsókn verið samþykkt á aðalfundi félagsins og félagar
þess játast undir siðareglur SKOTVÍS. Forsenda umsóknar er að starfsemi
félagsins falli að starfsemi SKOTVÍS. Slíka umsókn skal leggja fyrir aðalfund SKOTVÍS. Hljóti hún
samþykki aðalfundar SKOTVÍS skoðast félagið aðildarfélag SKOTVÍS. Gera skal
samstarfssamning milli SKOTVÍS og hlutaðeigandi félags sem lagður skal fram til
samþykktar á aðalfundi samhliða umsókn um aðild að SKOTVÍS. Þar skal m.a.
kveðið á skiptingu félagsgjalda, réttindi og skyldur félagsmanna hvors félags
við aðildina og hvort viðkomandi félag eignist áheyrnarfulltrúa í stjórn
SKOTVÍS og öfugt.
18. grein
Félagsmönnum SKOTVÍS er heimilt að sækja um til aðalfundar
félagsins að stofna deild innan félagsins um ákveðin áhugamál t.d.
veiðihundadeild og þess háttar. Með slíkri umsókn skal fylgja greinargerð um
starfssvið deildarinnar ásamt fjárhagsáætlun fyrir fyrsta væntanlegt starfsár
hennar. Hljóti slík umsókn samþykki aðalfundar SKOTVÍS er hinni nýju deild
heimilt að velja sér nafn sem notað skal samhliða nafni SKOTVÍS. Deild skal
nota merki SKOTVÍS en þó er deild heimilt að auðkenna merkið deildinni á
smekklegan og látlausan hátt með samþykki stjórnar SKOTVÍS.
19. grein
Aðildarfélag starfar eftir eigin lögum sem þó mega ekki vera
andstæð lögum eða siðareglum SKOTVÍS. Ef ósamræmi er milli laga SKOTVÍS og
aðildarfélags sem hefur áhrif á samskipti félaganna eða réttindi félagsmanna
gilda lög SKOTVÍS.
Deild kýs sér þriggja til fimm manna stjórn á aðalfundi
deildarinnar sem haldin skal í janúar ár hvert. Stjórn situr í 2 ár og skiptir
með sér verkum. Í fyrsta sinn er deild kýs eftir lögum þessum skal einn
stjórnarmanna kosinn til eins árs. Við boðun aðalfunda deilda gilda lög
SKOTVÍS.
20. grein
Um skiptingu félagsgjalda milli SKOTVÍS og aðildarfélags skal
kveðið á um í samstarfssamningi félaganna.
Félagar í deild greiða árgjald sitt til
SKOTVÍS í samræmi við samþykkt aðalfundar SKOTVÍS og greiðir stjórn SKOTVÍS til
stjórnar deildar 50% af árgjaldi skuldlausra félaga í deild. Greiðsla til
deilda skal innt af hendi mánaðarlega í samræmi við greiðslur félagsgjalda af
meðlimum deilda til SKOTVÍS.
Greiðsla til deildar er því aðeins innt af
hendi að haldinn hafi verið löglegur aðalfundur og endurskoðaður samþykktur
ársreikningur deildar hafi borist stjórn Skotvís fyrir 1. febrúar.
21. grein
Aðildarfélög og deildir hafa sjálfstæðan fjárhag sem stjórnir
aðildarfélaga og deilda eru ábyrg
fyrir og er þeim heimilt að afla sér sértekna t.d. með rekstri skotsvæðis, sölu
á merkjum og þess háttar. Aðildarfélag eða deild getur ekki skuldbundið SKOTVÍS
fjárhagslega né á annan hátt.
22. grein
Aðildarfélögum er heimilt að nota merki SKOTVÍS. Kveðið skal
nánar á um notkun merkja félaganna í samstarfssamningi þeirra.
23. grein
Aðildarfélag og deild getur sótt um aukagreiðslu til stjórnar
SKOTVÍS ef um er að ræða tímabundin verkefni eða stofnkostnað. Skal í umsókn
vera sundurliðuð fjárhagsáætlun og upplýsingar um hvort sótt er um styrki til
annarra aðila. Stjórn SKOTVÍS tekur ákvörðun um aukagreiðslu. Sætti
aðildarfélag eða deild sig ekki við ákvörðun stjórnar getur hún vísað henni til
næsta aðalfundar SKOTVÍS.
24. grein
Eigi sjaldnar en einu sinni á ári skal stjórn SKOTVÍS boða til
fundar með stjórnum aðildarfélaga og deilda. Til fundar skal boðað skriflega
með minnst 10 daga fyrirvara. Á fundinum skal ræða viðfangsefni SKOTVÍS,
aðildarfélaga og deilda. Fari aðildarfélag eða deild fram á það skal stjórn SKOTVÍS skylt að boða til
fundar með stjórnum félaga og deilda innan mánaðar frá því að slík beiðni kemur
fram
25. grein
Allir meðlimir SKOTVÍS eru jafn réttháir í aðildarfélögum og deildum
gagnvart t.d. aðgangi að æfingasvæðum og þess háttar og með þeim kjörum sem félögum
í aðildarfélagi og deildum er
boðið upp á nema kveðið sé sérstaklega á um annað í samstarfssamningi. Allir
meðlimir SKOTVÍS hafa málfrelsi á fundum aðildarfélaga og deilda sitji þeir þá,
en þeir einir hafa atkvæðisrétt á slíkum fundum sem eru meðlimir deildarinnar.
26. grein Um lok
samstarfs milli SKOTVÍS og aðildarfélags, skal kveðið á í samsstarfssamningi
aðila þ.m.t. um skiptingu sameiginlegra réttinda/eigna.
Hætti deild störfum renna eigur hennar til
SKOTVÍS.
27. grein
Stjórn SKOTVÍS er heimilt að gerast aðili að alþjóðlegum
samtökum skotveiðimanna og náttúruverndarsamtökum.
|