Saga félagsins
Skotveiðifélag Íslands var stofnað í september 1978.
Aðdragandi stofnunar félagsins var ærin og margir undirbúningsfundir
haldnir og flestir í húsnæði Hafró á Skúlagötu, enda voru
fiskifræðingar stofnunarinnar helstu kvatamenn stofnun þess og þar var
vagga félagsins fyrstu árin. Menn voru mjög metnaðarfullir í þá daga og
hugsað fyrir öllu, en fyrirmynd að lögum félagsins var sótt til
nýstofnaðs félags stangaveiðimanna og í smiðju frænda okkar á
Norðurlöndum. Við fórum strax í það að hanna merki félagsins sem hefur
svo sannarlega staðist tímans tönn. Þar er skotmaðurinn sýndur með
brugðna byssu til hálfs, standandi í bláu tæru vatni með grænt laufblað
sér á hægri hönd. Þetta á að tákna virðingu mannsins fyrir náttúrunni.
Formenn félagsins hafa verið þeir Sólmundur Tr. Einarsson sem reið á
vaðið, Finnur Torfi Hjörleifsson, Sverrir Scheving Thorsteinsson,
Hallgrímur Marinósson, Páll Dungal, Bjarni Kristjánsson, Ólafur Karvel
Pálsson og svo núverandi formaður þess Sigmar B. Hauksson.
Tilgangur félagsins var frá upphafi að stuðla að sameiningu
skotveiðimanna og áhugamanna um skotveiðar og náttúruvernd og standa
vörð um hagsmuni þeirra. Þessum tilgangi hyggst svo félagið ná með
eftirfarandi hætti:
- 1. Stuðla að útgáfustarfsemi og almennri fræðslu um
málefni, sem snerta skotveiðar, náttúruvernd og almennan fróðleik um
dýralíf landsins.
- 2. Eiga samvinnu við önnur félög og
samtök innlend og erlend, sem hafa málefni tengd áhugamálum
skotveiðimann á stefnuskrám sínum.
- 3. Stuðla að rannsóknum á og gagnasöfnun um stofna veiðidýra.
- 4.
Eiga samvinnu við önnur félög og opinbera aðila um setningu laga og
reglugerða um almannarétt, náttúruvernd, friðun og veiðar dýra og
meðferð skotvopna.
- 5. Aðstoða við stofnun landshlutafélaga um skotveiðar og styðja við starfsemi þeirra.
- 6. Greiða fyrir aðgangi veiðimanna að veiðilöndum.
- 7. Gangast fyrir kynningu og fræðslu fyrir almenning um skotveiðar.
- 8. Stuðla að aukinni hagkvæmni innkaupa fyrir félaga.
Svo mörg voru þau orð og svo getur maður spurt hvernig hefur til
tekist á þessum aldarfjórðungi eða svo. Því er ekki auðsvarað en eitt
er víst að félagið er orðið virt sem samtök skotveiðimanna á Íslandi og
er tekið mark á okkur í viðleitni félagsins til að bæta umgengni við
landið og þjóðina.
Til félagsins er leitað með ýmsar ályktanir og álitsgerðir til hins
opinbera og eins um aðstoð til félagsmanna og mörg mál hafa verið í
brennidepli.
Samt má ekki sofna á verðinum og ávallt verðum við að vera vakandi
fyrir rétti okkar og virðingu. Áður voru landréttarmálin í öndvegi og
nú eru það þjóðlendumálin sem brenna á okkur. Sífellt verðum við fyrir
aðkasti hvað varðar ýmis brot samfara veiðum á umgengni við landið og
samskipti við þjóðina. Þar má nefna veiðimennsku hinna vélvæddu sem
ekkert er skylt við veiðimennsku heldur öllu heldur villimennsku. Það
að æða um landið utan vega á rándýrum breyttum jeppum, torfæruhjólum,
fjór- eða sexhjólum eða vélsleðum er algjörlega ótækt og ber okkur að
vinna gegn því. Eins ætti að taka í hvívetna tillit til annarra sem
ferðast um landið og umfram allt að nota réttu byssurnar við veiðarnar.
Ég held að félagið hafi ræktað með okkur góða siði við veiðarnar svona
upp til hópa, en alltaf eru svörtu sauðirnir að skemma fyrir og það er
tekið eftir því.
Skotveiðifélag Íslands er framsækið og nútímaleg samtök manna sem
vilja nytja íslenska náttúru með virðingu og skila landinu eins
ósnortnu og hægt er til komandi kynslóða, en til þess að það megi
takast verða allir meðlimir þess að leggjast á plóginn.
Skotveiðifélag Íslands býður öllum þeim sem vilja hlíta reglum þess og
siðum að gerast meðlimir og leggja okkur lið.
|