Æfingasvæði Skotreynar er opið í júlí og ágúst (til 26.) á mánudögum, þriðjudögum miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 18 til 22.  Ath. breytingar á opnunartíma eru auglýstar með fyrirvara ásamt því sem skerðing getur orðið á opnunartíma vegna móta á miðvikudögum.
 

Landssamtök um skynsamlega skotveiði

Landssamtök um skynsamlega skotveiði

Forsíða arrow Veiðar í útlöndum
Greinar úr tímaritinu SKOTVÍS
Námskeið í haglabyssuskotfimi þriðjudaginn 15.sept - Vetraropnun PDF Prenta Rafpóstur
Höfundur: Kristján Sturlaugsson   
mánudagur, 14 september 2009

Námskeið í haglabyssuskotfimi verður haldið hjá Skotreyn þriðjudaginn 15. september kl. 17.

Þátttakendur mæta með eignin skot (28 gr. hámark) og byssur. 

Æfingargjaldið er 2.000 kr. og tekur námskeiðið um 1. klst.

Skráning er á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það     

 


Nú styttist í vetraropnun hjá Skotreyn. Samkvæmt núgildandi starfsleyfi Skotreynar er einungis heimilt að hafa opið á virkum dögum til kl. 20 eftir 15. september. Þriðjudagurinn 15. september verður því síðasti dagurinn í sumaropnun félagsins. Vetraropnun verður auglýst sérstaklega síðar.
 
Á krónhjartarveiðum í Skotlandi PDF Prenta Rafpóstur
Höfundur: Sigmar B. Hauksson   
föstudagur, 19 ágúst 2005

skotvis2005f.jpg Skoski krónhjörturinn þykir með glæsi­legustu veiðibráð Evrópu. Í aldaraðir voru það aðeins aðals­menn og óðals­herrar sem máttu stunda krón­hjartar­veiðar. Eini þáttur alþýð­unnar að þessum veiðum var að fátæk­ir bænd­ur nældu sér af og til í hjört í mat­inn. Þessar veiðar bænd­anna voru ekki litnar hýru auga af óðals­herr­un­um. Veiði­þjófnaður var talinn hinn mesti glæp­ur og við þessum glæp voru ströng viðurlög; jafnvel margra ára fang­elsi. Margar sögur eru þó til í Skot­landi af snjöll­um veiðiþjófum sem aldrei voru gripnir. Þessir kappar nutu mikillar virðingar meðal skoskrar alþýðu og eru margar sögur, ljóð og lög til um kænsku þeirra og dirfsku. Veið­arnar sköpuðu þó fjölmörg störf í dreif­býlinu. Á hverju óðali voru einn eða fleiri veiðiverðir. Þeirra starf var að skipuleggja veiðarnar, fylgjast með veiði­dýrunum, eyða vargi og auð­vitað að koma upp um veiði­þjófa. Þeir sáu einnig um þjálfun veiði­hund­anna og hirðingu skot­vopna. Veiði­verðirnir sáu einnig um að ganga frá bráðinni og verka horn og hausa sem stoppa átti upp.

 

Lesa meira...
 
Skotveiðar í Afríku – Namibíu PDF Prenta Rafpóstur
Höfundur: Jóhann M. Bjarnason   
fimmtudagur, 19 ágúst 2004
skotvis2004f.jpg Í júlí á síðastliðnu ári fór undir­ritaður til Namibíu á villi­dýra­veið­ar eftir að hafa kannað verðlag og að­stæður víða í Afríku. Namibía er mjög góður kostur fyrir skotveiðimenn þar sem þar er mun ódýrara að stunda veiðar en t.d. í Suður–Afríku. Þetta hafa þó nokkrir Íslendingar nýtt sér.
Fyrir þá sem áhuga hafa á skotveiðiferð til Namibíu og vilja fara með eiginn riffil skal bent á nokk­ur atriði. Í fyrsta lagi þarf að hafa samband við viðurkenndan aðila sem hefur leyfi stjórnvalda til að fara með veiðimenn á veiðar. Þessi aðili send­ir síðan „boðsbréf“ til veiðimannsins þar sem fram kemur hvaða dýr hann óskar eftir að skjóta og hvenær. Þá er sótt um útflutningsleyfi fyrir það eða þau skotvopn sem ætlunin er að nota og þarf að fylgja boðsbréfið og skot­vopna­leyfi. Þegar farið er til Namibíu er fyrst flogið frá Keflavík til Jóhannesarborgar og þaðan til Windhoek, sem er höfuðborg Namibíu. Þegar farið er úr landi í Keflavík þarf að sýna útflutningsleyfið og eins þegar komið er til baka. Þegar komið er til Jóhannesarborgar og Windhoek fær veiðimaður skjal sem heimilar honum notkun skotvopns í ákveðinn tíma í landinu, sem hann afhendir síðan við brottför úr landinu.
Lesa meira...
 
Svartbjarnaveiðar í Kanada PDF Prenta Rafpóstur
Höfundur: Haukur Snorrason   
laugardagur, 19 ágúst 2000
skotvis2000f.jpgBjarnaveiðar! Þetta hljómaði óneit­an­lega spennandi. Ekki síst hjá okkur Íslendingum sem höfum mest fiðurfénað til veiða. Ég er búinn að vera á kafi í þessu hefðbunda, gæsa­veið­um, svartfugli, önd og rjúpu og langaði virkilega í tilbreytingu. Hrein­dýr höfum við en ég hef alltaf sett verð­ið fyrir mig, svo eru þetta hálf­gerðar beljur sem hafa aldrei heill­að mig sem veiðimann, ekki nógu mat­sjó! En að skjóta skógarbjörn hljóm­ar allt öðruvísi, ég og björninn! Já, þetta er ég til í!
Lesa meira...
 
Frá Dalvík til Minnesota - Fasanaveiðar PDF Prenta Rafpóstur
Höfundur: Daniel Hilmarsson   
laugardagur, 19 ágúst 2000
skotvis2000f.jpgÞegar SKOTVÍS auglýsti ferð til Minnesota í okkar ágæta frétta­bréfi tók hjartað í okkur félögunum, allmikinn kipp. Það skildi sko ekki henda annað árið í röð að við sætum heima. Enda varð sú raunin að þrír af fjórum okkar sátu í makindum, í 30.000 fetunum skömmu síðar, eins og sex ára strákar á leið í bíó í fyrsta sinn. En einn okkar varð að sætta sig við að skoðaði gólfefni niður á Ind­landi (og hefur enn ekki jafnað sig).
Lesa meira...
 
 
Joomla Templates by Joomlashack