|
Sendið athugasemd til stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs |
|
|
|
|
Höfundur: Kerfisstjóri
|
|
miðvikudagur, 16 júní 2010 |
Eftirfarandi texti er hugsaður til að auðvelda þeim sem málið varðar að koma til skila athugasemd til stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs vegna tillögu að stjórnar- og verndaráætlunar fyrir þjóðgarðinn. Stjórn SKOTVÍS hvetur alla veiðimenn til að kynna sér málið á heimasíðu þjóðgarðsins og senda inn athugasemdir, og láta boðin ganga til annarra að gera slíkt hið sama.
„Ég undirritaður skora á stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs og umhverfisráðherra að hafna þeim tillögum sem snúa að því að banna eða takmarka hefðbundnar skotveiðar innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Veiðar sem stundaðar eru í íslenskri náttúru eru mikil upplifun og góð afþreying og er íslensk villibráð einhver hollasti matur sem völ er á. Það er sjálfsagt að nýta það sem landið gefur af sér á skynsamlegan og sjálfbæran hátt.
Leyfum framtíðar veiðimönnum að njóta náttúrunnar á sama hátt og forfeður þeirra hafa gert um aldir. Þjóðgarðar eru sameign þjóðarinnar. Takmarkið ekki eðlilegar veiðar innan þeirra“
Frestur til að skila athugasemdum rennur út fimmtudaginn 24. júní 2010. Verið búin að skila inn athugasemdum fyrir þann tíma!
Athugasemdum skal skilað skriflega til Vatnajökulsþjóðgarðs,
Klapparstíg 25-27, 4. hæð, 101 Reykjavík
EÐA í tölvupósti á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
með nafni, kennitölu og heimilisfangi viðkomandi.
Sjá nánar á:
http://www.vatnajokulsthjodgardur.is/starfsemi/a-dofinni/nr/236
|
|
|
Vegna Vatnajökulsþjóðgarðs |
|
|
|
|
Höfundur: Kerfisstjóri
|
|
miðvikudagur, 16 júní 2010 |
|
Stjórn SKOTÍS hefur sent stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs athugasemdir við tillögu að stjórnar- og verndaráætlun þjóðgarðsins.
Bréfið má lesa hér á pdf formi ásamt tveimur fylgiskjölum.
Bréf frá Skotvís þann 14. júní 2010
Athugasemdir Skotvís 12. apríl 2010
Ályktun stjórnar Skotveiðifélags Íslands 15. mars 2010
|
|
|
Breytingar á námskeiðum fyrir hreindýraveiðimenn |
|
|
|
|
Höfundur: Kerfisstjóri
|
|
sunnudagur, 06 júní 2010 |
Námskeið það sem halda átti fyrir hreindýraveiðimenn laugardaginn 12. júní hefur verið aflýst. SKOTVÍS mun hinsvegar bjóða félagsmönnum sínum sem greitt hafa árgjald sitt fyrir árið 2010 að sækja námskeið Skotfélags Reykjavíkur sér að kostnaðarlausu.
Þessi breyting er til mikils hagræðis fyrir félagsmenn SKOTVÍS því námskeið SR verða alla miðvikudaga í sumar frá og með 23. júní og til og með 04. ágúst. Námskeiðin hefjast kl. 19 og þeim lýkur kl. 21 . Félagsmenn SKOTVÍS sem hyggjast sækja námskeiðin eru beðnir að skrá sig á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Stjórn SKOTVÍS.
|
|
|
Höfundur: Kerfisstjóri
|
|
fimmtudagur, 25 mars 2010 |
Dagskrá fyrir málþingið Óður til hreindýrsins á Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls, málþingið verður miðvikudaginn 31.mars (daginn fyrir Skírdag)
Málþingið fer fram í Nýheimum á Höfn í Hornafirði, markmiðið er að fræðast almennt um hreindýrin og greina þau tækifæri sem felast í þessari auðlind sem hreindýrin eru. Leitast verður við að málþingið verði þverfaglegt og varpi ljósi á flesta þá þætti sem tengjast hreindýrum, eins og ferðaþjónustu, handverk, mat úr héraði, skotveiði og veiðilendur. Um kvöldið ætlum síðan að borða mat úr héraði á Hótel Höfn en þar verður einnig frumflutt skemmtiatriði sem ber heitið Óður til hreindýrsins.
Vinsamlega skráið þátttöku sem fyrst en í síðasta lagi föstudaginn 26. mars, tilkynna þarf sérstaklega þátttöku í kvöldverði.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Ályktun frá stjórn SKOTVÍS |
|
|
|
|
Höfundur: Elvar Árni Lund
|
|
mánudagur, 15 mars 2010 |
|
Reykjavík 15. mars 2010
Ályktun stjórnar Skotveiðifélags Íslands vegna tillögu að verndaráætlun fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.
Skotveiðifélag Íslands undrast þær tillögur og þau vinnubrögð sem liggja fyrir í tillögu að verndaráætlun fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar koma fram tillögur um bann við veiðum á hreindýrum, gæsum og rjúpum á ákveðnum svæðum innan þjóðgarðsins. Skýrsluhöfundar hafa ekkert samband haft við viðeigandi hagsmunaaðila, í þessu tilfelli Skotveiðifélag Íslands, þrátt fyrir að lagt sé til að gengið sé á rétt skotveiðimanna með tillögunni. Það bendir til þess að viðunandi hagsmunaaðilagreining hafi ekki verið unnin af skýrsluhöfundum.
Tillagan var kynnt á fundi þann 11. mars sl. á Hótel Héraði og var Skotveiðifélagi Íslands aldrei tilkynnt um þennan fund. Það er athyglisvert þar sem fram kemur á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs að svæðisráð, sem ber ábyrgð á tillögunni, verði á staðnum til taka á móti ábendingum og athugasemdum varðandi drögin að verndaráætluninni. Miðað við þetta má draga þá ályktun að skýrsluhöfundar hafi ekki kært sig um athugasemdir frá skotveiðimönnum og þeirra hagsmunasamtökum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 9 af 64 |