Skotveiðifélag Íslands

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Aðalfundur 2012, samantekt Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fréttir
Sunnudagur, 05. febrúar 2012 15:06
Aðalfundur Skotvís 2012 var haldinn 31. Janúar s.l. og voru á dagskrá hefðbundin aðalfundarstörf.  Formaður Skotvís, Elvar Árni Lund setti fundinn kl. 20:00 og var Stefán Róbert Gissurarson, stjórnarmaður Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis kosinn fundarstjóri.

SKÝRSLA STJÓRNAR
Elvar Árni Lund las skýrslur stjórnar [hljóðskrá hér] og fór yfir það helsta í starfi félagsins á síðasta ári og starfið framundan. Þar bar hæst niðurrifsstarf stjórnvalda á veiðistjórnunarkerfinu og nauðsynlega aðkomu Skotvís að endurreisn kerfisins.

REIKNINGAR FÉLAGSINS
Kristján Sturlaugsson, fráfarandi varaformaður og gjaldkeri las upp reikninga félagsins sem voru samþykktir samhljóða. Þar bar hæst endurskipulagning innra skipulags félagsins sem gerir félaginu kleift að ráðast í frekari aðgerðir á árinu 2012.

LAGABREYTINGAR
Lagabreytingatillögur [hér} sem bárust stjórn fyrir 1. desember voru kynntar og lagðar fyrir fundinn til samþykktar. Fyrir utan nokkrar nauðsynlegar lagfæringar á orðalagi í lögunum, þá voru borin upp tillaga stjórnar að fella út lagagreinar sem sneru að deildum innan Skotvís. Deildir eru að mati stjórnar ekki heppilegt fyrirkomulag til að styrkja starfsemi félagsins við að ná markmiðum sínum. Meiri áhersla verður lögð á starfsemi Framkvæmdaráðs og aðildarfélagsfyrirkomulagið – Lagabreytingarnar voru samþykktar samhljóða, en jafnframt var lagt til að stjórn gæti þess vandlega að samstarfssamningar við aðildarfélög séu þess eðlis að þau styrki skotveiðihreyfinguna og ímynd félagsins, m.a. við notkun merkis Skotvís.  Einnig komu fram ábendingar frá stjórn að hugleiða þyrfti að setja í lög ákvæði um framboðsfrest og utankjörstaðaatkvæðagreiðslur í þeim tilgangi að auka áhrif landsbyggðarinnar.
Nýja útgáfu af lögum félagsins má finna [hér].

ÁKVÖRÐUN FÉLAGSGJALDA
Stjórn Skotvís lagði til óbreytt félagsgjald fyrir almanaksárið 2013 (árgjald 2012, sem ákveðið var á aðalfundi 2011, var einnig óbreytt frá árinu á undan, þ.e. 5.000,-) – Tillaga um óbreytt félagsgjald var samþykkt samhljóða.

KOSNING FORMANNS, VARAFORMANNS OG STJÓRNAR
Sjö félagsmenn voru í framboði til stjórnar og fór Elvar Árni Lund yfir þær sérstöku aðstæður að öll stjórn félagsins er í kjöri að þessu sinni. Formann og varaformann þarf að kjósa á hverjum aðalfundi, en meðstjórnendur eru kosnir til tveggja ára í senn, og hingað til hafa kjörtímabil meðstjórnenda skarast. Þorsteinn Sæmundsson sem var kosinn meðstjórnandi í fyrra gefur ekki áfram kost á sér til áframhaldandi starfa og Arne Sólmundsson sem einnig var kosinn meðstjórnandi, er núna í framboði til varaformanns.
Í núverandi lögum er ekkert sem tryggir slíka skörun og þykir óheppilegt að stjórn félagsins gangi öll út í einu. Því er lögð fram sú tillaga að stjórn félagsins beiti sér fyrir lagabreytingartillögu fyrir 1. desember 2012 sem stuðli að því að skörun á kjörtímabili meðstjórnenda sé tryggð – Tillaga samþykkt samhljóða.
Kosning var stjórnar var einnig samþykkt samhljóða:
  • Elvar Árni Lund hlaut kosningu sem formaður til eins árs.
  • Arne Sólmundsson hlaut kosningu sem varaformaður til eins árs.
  • Eggert Ólason hlaut kosningu sem meðstjórnandi til tveggja ára.
  • Indriði Grétarsson hlaut kosningu sem meðstjórnandi til tveggja ára.
  • Kristján Sturlaugsson hlaut kosningu sem meðstjórnandi til tveggja ára (var skipaður sem gjaldkeri nýrrar stjórnar á fyrsta stjórnarfundi strax í kjölfar aðalfundar).
  • Sigríður Ingvarsdóttir hlaut kosningu sem meðstjórnandi til tveggja ára.
  • Þórður Aðalsteinsson hlaut kosningu sem meðstjórnandi til tveggja ára (var skipaður ritari nýrrar stjórnar á fyrsta stjórnarfundi strax í kjölfar aðalfundar).

Kynningu á stjórnarmönnum má finna [hér].

KOSNING TVEGGJA SKOÐUNARMANNA REIKNINGA OG EINS TIL VARA
Tillaga stjórnar að skoðunarmönnum eru Frank Franksson, Kolbeinn Friðriksson og Einar Hrafn Jóhannsson til vara.

ÖNNUR MÁL
Elvar Árni Lund bað um orðið og vildi nota tækifærið og óska fyrsta formanni Skotvís, Sólmundi Tr. Einarssyni til hamingju með 70 ára afmælið þann 24. desember s.l. og færa þakkir stjórnar fyrir hönd allra félagsmanna fyrir fórnfúst starf í þágu félagsins frá stofnun þess. Sólmundur ásamt öðrum hefðu unnið mikið frumkvöðlastarf fyrir skotveiðimenn sem veittu komandi kynslóðum stjórnarmanna innblástur. Sólmundur tók við gjöf frá félaginu og flutti við sama tækifæri þakkarræðu þar sem hann kom inná stöðu veiðistjórnunar ásamt tillögu að ályktun.

Fimm ályktunartillögur voru bornar upp til samþykkis og samþykktar:
  1. Veiðistjórnun á Íslandi [hér] (flutningsmaður tillögu: Sólmundur Tr. Einarsson)
  2. Fagleg veiðistjórnun [hér] (flutningsmaður tillögu: Stjórn Skotvís)
  3. Veiðar í einkajörðum og siðareglur Skotvís [hér] (flutningsmaður tillögu: Stjórn Skotvís)
  4. Almannaréttur, ferðafrelsi og nýting [hér] (flutningsmaður tillögu: Stjórn Skotvís)
  5. Starfshópur um áætlun um fjölgun hreindýr [hér] (flutningsmaður tillögu: Sigmar B. Hauksson)
Aðalfundi lauk kl. 22:30 og sóttu hann 27 félagsmenn.  Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar var svo haldinn strax í kjölfarið.
 
Ný stjórn Skotvís 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fréttir
Fimmtudagur, 24. febrúar 2011 15:46

Á aðalfundi Skotvís þriðjudaginn 31. janúar var kosin ný stjórn félagsins, en fundinn sóttu um þrjátíu félagsmenn.  Elvar Árni Lund gaf áfram kost á sér sem formaður, en hann var einn í framboði og því sjálfkjörinn til eins árs.  Aðrir sem voru í framboði til stjórnar voru einnig sjálfkjörnir þar sem engin mótframboð bárust.  Arne Sólmundsson var kjörinn varaformaður til eins árs, Eggert Ólason, Indriði Grétarsson, Kristján Sturlaugsson, Sigríður Ingvarsdóttir og Þórður Aðalsteinsson hlutu kosningu sem meðstjórnendur til tveggja ára.

Nánar...
 
Framboð til stjórnar Skotvís 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fréttir
Fimmtudagur, 24. febrúar 2011 15:46

Aðalfundur Skotvís 2012 verður haldinn í húsi Verkfræðingafélagsins að Engjateigi 9 í Reykjavík, þriðjudaginn 31. janúar 2012, kl. 20:00.  Allir félagsmenn Skotvís eru kjörgengir og gefst félagsmönnum kostur á því að bjóða sig fram á aðalfundi félagsins.  Framboðsfrestur er fram að kosningu stjórnar á aðalfundi félagsins ár hvert.  Úr sjö manna stjórn núverandi stjórnar, eru þrír sem gefa kost á sér til áframhaldandi starfa fyrir félagið, en ný framboð hafa einnig borist. 

Meðfylgjandi er stutt kynning á þeim frambjóðendum sem hafa gefið kost á sér til stjórnarsetu fyrir starfsárið 2012.

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 37

Póstlisti Skotvís

Skráðu þig hér
Skráðu þig á póstlistann til að fá reglulegar fréttir




Fjölmiðlavaktin


yeswehunt 02

Fuglavefurinn

Fjölmiðlavaktin